Alþjóðanefnd læknanema við Háskóla Íslands sér um að senda íslenska læknanema til útlanda í skiptinám og taka við erlendum læknanemum sem vilja koma í skiptinám til Íslands. Nefndin fellur þannig undir SCOPE (e. Standing Committee on Professional Exchange) í alþjóðlegum samtökum félaga læknanema, IFMSA.
Að vori geta læknanemar við HÍ boðið sig fram og kosið nefndarmeðlimi í alþjóðanefnd af sínu námsári. Eftir kosningu er samkomulag milli nefndarmeðlima hver gegnir hvaða hlutverki innan nefndarinnar. Mismunandi er milli námsára hversu margir geta boðið sig fram í nefndina en skólaárið 2024-2025 eru 10 meðlimir og er Birta Rakel Óskarsdóttir, 5. árs læknanemi, formaður hennar. |